Næsta skref til jafnréttis – tækifærið er núna

Við erum í dauðafæri að taka næsta skref í jafnréttismálum með samþykkt nýrra laga um fæðingarorlof. Ísland braut blað árið 2000 í framsýni þegar ákveðnir mánuðir voru eyrnamerktir hvoru foreldri um sig. Það var umdeilt hér innanlands og talað um forræðishyggju, en þegar upp var staðið voru þetta lög sem við vorum stolt af og kynntum sem jafnréttismál um heim allan. Þau voru okkar framlag til jafnréttis á alþjóðavettvangi, höfðu jákvæð áhrif á stöðu kynjanna inni á heimilum og á vinnumarkaði og ekki síst á vellíðan og tengslamyndun barna við báða foreldra. Önnur lönd lærðu af okkar framsýni og mörg fetuðu sömu slóð. Núgildandi lög skilyrða þriðjung til hvors foreldris, með frumvarpinu er 41% skilyrt – hófsamari skref í átt til jafnréttis er varla hægt að stíga og er það gert samhliða lengingu heildarorlofs.

Í þeim heimi kynjamisréttis sem við búum í enn í dag er það nefnilega svo að í langflestum gagnkynhneigðum samböndum tekur konan það orlof sem er til skiptanna. Þetta á sér rætur í bæði í menningarbundnum þáttum og í kynbundnum launamun og á sér í lagi við um konur sem eru með lægri laun eða í námi. Jafnréttishugmyndin fer fyrir lítið og karlar verða af þessum dýrmætu mánuðum í fæðingarorlofi.

Markmið laganna er að tryggja barni samvistir við báða foreldra og gera foreldrum kleift að samræma fjölskyldu- og atvinnulíf. Byggjum á reynslu og rannsóknum og verum framsýn. Þetta er þó ekki síðasta skrefið í að byggja upp gott fæðingarorlofskerfi. Skerðingar eru enn of miklar, sérstaklega gagnvart láglaunafólki og lægstu greiðslur alltof lágar. En frumvarpið eins og það liggur nú fyrir er sannarlega skref í rétta átt. Nýtum tækifærið sem við höfum núna!

Að lokum vil ég minna á samstöðu með starfsfólki Amazon í gegnum þátttöku í alþjóðlegri herferð undir slagorðinu  „látum Amazon borga“, en eitt stærsta fyrirtæki veraldar sem malar gull um þessar mundir býður uppá óboðlegar vinnuaðstæður, neitar starfsfólki um þátttöku í stéttarfélögum og kemur sér hjá því að greiða skatta. Sýnum samstöðu og verslum ekki við Amazon í dag. Nánari upplýsingar um átakið má finna á heimasíðu ASÍ.

Góða helgi,
Drífa Snædal

forseti ASÍ

DEILA