Leikskóli og grunnskóli: grímuskylda og tveggja metra regla fyrir starfsfólk

Grunnskólinn á Ísafirði.

Birtar hafa verið hertar  reglur um skólastarf á leikskóla- og grunnskólastigi sem gilda um land allt.

Að ráði sóttvarnalæknis verður reglu um grímuskyldu breytt þannig að hún eigi ekki við um börn fædd 2011 og síðar. Nýju reglurnar taka gildi  þriðjudaginn 3. nóvember nk. Reglugerðin nær einnig til frístundaheimila, félagsmiðstöðva og íþrótta- og tómstundastarfs barna.

Helstu breytingar sem reglugerðin felur í sér eru eftirfarandi:

Leikskólar:

Í leikskólum gildir tveggja metra reglan um kennara og starfsfólk, en þar sem lágmarksfjarlægð verður ekki komið við er starfsfólki skylt að bera andlitsgrímur. Hámarksfjöldi fullorðinna í hverju rými eru 10. Nálægðartakmörk gilda ekki um börn á leikskólaaldri, en fjöldi barna í hverju sóttvarnarými skal að hámarki vera 50.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til. Gestir sem koma í leikskólabyggingar, svo sem starfsfólk skólaþjónustu eða vegna vöruflutninga, skulu gæta að 2 metra nálægðartakmörkun og bera andlitsgrímur.

Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á leikskólaaldri er óheimilt á meðan reglugerðin er í gildi.

Grunnskólar og frístundastarf á grunnskólastigi:

Tveggja metra reglan gildir um kennara og starfsfólk í grunnskólum, en nota skal andlitsgrímu þar sem ekki er hægt að tryggja lágmarksfjarlægð. Hámarkfjöldi fullorðinna í hverju sóttvarnarými í grunnskólum er 10, en starfsfólki er heimilt að fara milli hópa til að sinna kennslu og veita aðra nauðsynlega þjónustu.

Nemendur í 1.-4. bekk eru undanþegnir tveggja metra reglu og grímuskyldu. Hámarksfjöldi þeirra í hverju sóttvarnarými eru 50.

Nemendur í 5.-10. bekk þurfa að fylgja tveggja metra reglu, en ef víkja þarf frá henni ber nemendum að nota grímu. Að hámarki mega 25 nemendur í 5.-10. bekk vera í hverju sóttvarnarými.

Í sameiginlegum rýmum skólabygginga, svo sem við innganga, í anddyri, á salerni og göngum, er heimilt að víkja frá fjöldatakmörkun og reglu um blöndun hópa að því gefnu að nemendur í 5.-10. bekk og starfsfólk noti andlitsgrímu. Við aðstæður þar sem ekki er hægt að framfylgja nálægðartakmörkun, svo sem í verklegri kennslu og listkennslu, skulu kennarar og nemendur í 5.-10. bekk nota grímur.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma inn í skólabyggingar nema brýna nauðsyn beri til. Aðrir sem þurfa að koma í skólabyggingar, svo sem starfsfólk skólaþjónustu, kennarar tónlistarskóla eða starfsfólk í vöruflutningum, skulu gæta að 2 metra nálægðartakmörkun og bera andlitsgrímur.

Halda skal þeirri hópaskiptingu nemenda sem er í grunnskólastarfi á frístundaheimilum þannig að þar verði ekki blöndun á milli nemendahópa.

Skipulagt íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarf barna á grunnskólaaldri, þ.m.t. starf félagsmiðstöðva, er óheimilt á meðan reglugerðin er í gildi.

Tónlistarskólar:

Tónlistarskólum er heimilt að sinna einstaklingskennslu með 2 metra nálægðartakmörkun milli starfsfólks og nemenda. Að hámarki mega 10 einstaklingar vera í sama rými, en tryggja þarf að blöndun hópa verði ekki önnur en í almennu skólastarfi. Andlitsgrímur skulu notaðar í öllu starfi með nemendum þar sem því verður við komið.

Foreldrar og aðstandendur skulu almennt ekki koma í tónlistarskóla nema brýna nauðsyn beri til. Gestir sem þurfa að koma í skólabyggingar, svo sem starfsfólk skólaþjónustu sveitarfélaga eða vegna vöruflutninga, skulu gæta að 2 metra nálægðartakmörkun og bera andlitsgrímur.

 

DEILA