Ísafjörður: Auglýst eftir þátttakendum í jólatorgsölu

Laugardaginn 28. nóvember verða jólaljósin tendruð á jólatrénu á Silfurtorgi og eins og venjan er mun torgsala Tónlistarskóla Ísafjarðar fara fram á sama tíma.

Í samstarfi við TÍ hefur í ár verið ákveðið að bjóða fleirum að taka þátt í torgsölunni. Því er auglýst eftir áhugasömu handverksfólki, verslunarfólki og hverjum þeim sem vilja bjóða varning til sölu á torgsölunni.

Þátttakendur þurfa sjálfir að koma með sölubása eða borð og verður þeim raðað niður í kringum Silfurtorg þegar fjöldi liggur fyrir.

Eins og gefur að skilja mun torgsalan einungis fara fram ef samkomutakmarkanir leyfa.

Áhugasamir hafi samband við Tinnu Ólafsdóttur, upplýsingafulltrúa Ísafjarðarbæjar, upplysingafulltrui@isafjordur.is.

DEILA