Háskólasetur: Kynna rannsóknir sínar á ráðstefnu í Connecticut

Nú í vikunni mun Johannes Stein, nemandi í haf- og stranadsvæðastjórnun og Matthias Kokorsch, fagstjóri meistaranáms í sjávarbyggðafræðum kynna rannsóknir sínar á alþjóðlegri ráðstefnu í Connecticut, Bandaríkjunum.

Ráðstefnan fer fram dagana 4.-8. nóvember og er yfirskrift hennar “Coastal Transitions: Blue Economy”, eða “Umbreytingar strandsvæða: Bláa hagkerfið.”
Ráðstefnan er skipulögð af dr. Patrick Heidkamp, sem kennir einmitt námskeið um bláa hagkerfið við Háskólasetur Vestfjarða.

Á ráðstefnunni munu þeir Johannes og Matthias kynna rannsóknir sínar á fyrirhuguðum hafnarframkvæmdum í Finnafirði á Norðausturlandi.

Rannsóknir Matthiasar beinast að áhrifum slíkra verkefna á samfélagslega seiglu en Johannes fjallar um hvernig heimamenn skynja þessar fyrirætlanir, væntingar þeirra og áhyggjur.
Þær niðurstöður byggja á spurningakönnun sem hann framkvæmdi í sumar í tengslum við meistaraprófsritgerð sína.

Enn er hægt að skrá sig ókeypis á ráðstefnuna sem áhorfandi á þessum tengli.

DEILA