Grímur gera gagn – ef þær eru notaðar rétt

Grímur eru mikilvæg viðbót við einstaklingsbundnar sóttvarnir, og nauðsynlegar þar sem erfitt er að virða fjarlægðarmörk. Munum að þær koma ekki í stað handþvottar og annarra sóttvarna.
Það er nauðsynlegt að nota grímuna rétt, annars gerir hún ekkert gagn og veitir falskt öryggi.

Gríman þarf að hylja bæði munn og nef til að stöðva dropasmit.

Einnota gríma dugar í þrjá til fjóra tíma, eða þar til hún er orðin rakamettuð. Þá þarf að henda henni og setja upp nýja. Margnota grímur þarf að þvo minnst daglega.

Það er mikilvægt að snerta grímurnar sem minnst og þvo hendur eða sótthreinsa eftir snertingu.

Þannig koma grímurnar að mestu gagni.

Á öllum vinnustöðum og í allri annarri starfsemi, s.s. kennslu, fyrirlestrum og kirkjuathöfnum þarf að tryggja 2 metra nálægðarmörkin á milli fólks sem er ekki í nánum tengslum.

Andlitsgrímur skal nota í almenningssamgöngum, í verslunum og í annarri þjónustu. Einnig skal nota andlitsgrímur þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra nálægðartakmörkun, svo sem í heilbrigðisþjónustu, leigubifreiðum og hópbifreiðum. Andlitsgríma skal hylja nef og munn

https://youtu.be/5x6r2XAkKEQ

DEILA