Foss í Fossfirði

Fossfjörður er einn af svokölluðum Suðurfjörðum, sem ganga inn úr Arnarfirði.

Suðurfirðirnir eru Bíldudalsvogur, Fossfjörður, Reykjarfjörður, Trostansfjörður og Geirþjófsfjörður og er Fossfjörður þeirra vestastur.

Í botni Fossfjarðar er bærinn Foss og þar er einnig að finna fallegan foss sem heitir einfaldlega Foss.

Í Fossfirði er vinsæll viðkomustaður ferðamanna sem hefur fengið nafnið A-húsið.

Húsið er gamalt og yfirgefið og hefur verið vinsælt myndefni ferðalanga fyrir þær sakir að það er afar sérstakt í laginu og stendur á fallegum stað.

DEILA