Brýr lagfærðar í Kaldalóni – ný yfir Dalsá

Í Kaldalóni.

Vegagerðin hefur unnið að viðgerð á þremur brúm í gamla Snæfjallahreppi. Er það brúarvinnuflokkur Vegagerðarinnar á Hvammstanga ásamt Hannesi Hilmarssyni verktaka sem vinnur verkið.

Brýrnar á Flautá og Torfá í Kaldalóni hafa verið  endurnýjaðar og sett ný brú yfir Dalsá í Unaðsdal.

Eins og sjá má af meðfylgjandi myndum Hannesar Hilmarssonar er um miklar framfarir að ræða.

Ný brú yfir Unaðsdalsá í smíðum.
Gamla brúin á förum.

DEILA