Bílatryggingar mun dýrari á Íslandi en hinum Norðurlöndunum

Bílatryggingar eru 50-100% dýrari hér á landi en á hinum Norðurlöndunum samkvæmt samanburði sem FÍB gerði í október.

Engar eðlilegar skýringar eru á því hvers vegna munurinn er svona mikill íslenskum bíleigendum í óhag.
Í Danmörku eru bílar til dæmis dýrari en hér og laun svipuð. Samt eru íslensku bílatryggingarnar 57-97% dýrari en þær dönsku.
Danskt tryggingafélag innheimtir rúmlega 97 þúsund króna iðgjald á móti 153 til 192 þúsund króna iðgjaldi íslensku félaganna.

Einu „eðlilegu“ skýringarnar á þessum mikla verðmun liggja í því að íslensku tryggingafélögin okra á bíleigendum vegna þess að þau komast upp með það.
Engin raunveruleg samkeppni ríkir á milli félaganna og hefur aldrei gert.
Fjármálaeftirlit Seðlabankans beinlínis hvetur félögin til að hafa sem hæst iðgjöld. Þessum ofteknu iðgjöldum er safnað í tugmilljarða króna sjóði sem tryggingafélögin ávaxta í þágu eigenda sinna.

Í könnun FÍB voru tekin hliðstæð dæmi um bíltegundir og fjölskylduaðstæður, til að fá sem réttastan samanburð.

DEILA