Vestfirðir: 20 fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri

Snerpa á Ísafirði er eitt af fyrirmyndarfyrirtækjunum á Vestfjörðum samkvæmt lista Viðskiptablaðsins í samstarfi við Kelduna. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Viðskiptablaðið í samstarfi við Kelduna birti í gær lista yfir fyrirtæki á landinu sem fá einkunnina fyrirmyndarfyrirtæki á þessu ári. En 2,8% íslenskra fyrirtækja komast á listann.

Til þess að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði:

  • Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þurfa að hafa skilað ársreikningi fyrir rekstrarárin 2019 og 2018 en rekstrarárið 2017 er einnig notað til viðmiðunar.
  • Fyrirtækin þurfa að hafa skilað jákvæðri afkomu á rekstrarárunum 2019 og 2018.
  • Tekjur fyrirtækja þurfa að hafa verið umfram 30 milljónir króna á rekstrarárunum 2019 og 2018.
  • Eignir fyrirtækja þurfa að hafa verið yfir 80 milljónir króna í lok áranna 2019 og 2018.
  • Eiginfjárhlutfall fyrirtækja þarf að hafa verið yfir 20% í lok áranna, nema í tilviki bankanna.

Auk þessa er tekið tillit til annarra þátta, sem metnir eru af Viðskiptablaðinu og Keldunni.

Tvö fyrirmyndarfyrirtæki í fámennasta þorpinu – Drangsnesi

Tuttugu  vestfirsk fyrirtæki komast á listann. Níu þeirra eru á Ísafirði, fjögur í Bolungavík, tvö fyrirtæki á Drangsnesi og fimm fyrirtæki sem eru á eftirtöldum fimm stöðum, í  Súðavík, á Suðureyri, Hólmavík , Patreksfirði og á Reykhólum.

Af þessu fyrirtækjum er eitt í opinberri eigu, Orkubú Vestfjarða.

Hin eru:

Oddi hf Patreksfirði, Þörungaverksmiðja ehf á Reykhólum, Klofningur ehf Suðureyri, Aurora Seafood ehf Súðavík, Hlökk ehf  Hólmavík, Fiskvinnslan Drangur ehf og ST 2 ehf á Drangsnesi, Jakob Valgeir ehf , Fiskmarkaður Vestfjarða ehf, Þotan ehf og Endurskoðun Vestfjarða ehf í Bolungavík og á Ísafirði:  Laugi ehf, Snerpa ehf, Vélsmiðjan Þristur ehf, Bakarinn ehf, Kubbur ehf, Vestri ehf, Sjóferðir Hafsteins og Kiddýar, Rafskaut, 3X Technology hf.

DEILA