Verkvest: aðstæður skipverja skelfilegar

Júlíus Geirmundsson ÍS 270 við bryggju í Ísafjarðarhöfn. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

„Aðstæður skipverja voru því vægast sagt skelfilegar þar sem þeir veiktust einn af öðrum og höfðu ekki aðrar bjargir en verkjalyf til að halda sér gangandi þar sem skipið var við veiðar og vinnslan í gangi. Síðar kom í ljós að lyfjabirgðir voru ekki nægar og þurfti þá að handvelja úr hverjir væru veikastir og þyrftu mest á verkjalyfjum að halda.“

Þetta kemur fram  í yfirlýsingu frá Verkalýðsfélagi Vestfirðinga sem gefin var út núna síðdegis eftir fund félagsins með skipverjum á Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270.

Á þriðja tug skipverja sóttu fundinn, sem var bæði staðfundur fyrir þá sem ekki tóku þátt í umræddri veiðiferð og einnig fjarfundur fyrir þá sem höfðu sýkst og voru í sóttkví eða sættu einangrun. Ljóst er af frásögnum skipverja að ástandið um borð varð mjög alvarlegt og skipverjar margir hverjir alvarlega veikir með mikinn hita, öndunarörðuleika ásamt fleiri þekktum Covid einkennum segir í tilkynningunni.

Veikindin ekki tilkynnt

Áfram segir í tilkynningunni að  þrátt fyrir þessu skýru einkenni um sýkingu töldu hvorki útgerð né skipstjóri ástæðu til að tilkynna um veikindin til sóttvarnaryfirvalda eða Landhelgisgæslu eða halda skipi til hafnar þannig að hægt væri að framkvæma sýnatöku og koma í veg fyrir frekari smit um borð.

Þá segir í tilkynningu Verkalýðsfélagsins:

„„Hver er að ljúga að okkur?“ spyrja skipverjar og vísa til þess að umdæmislæknir sóttvarna hafði lýst yfir að hann vildi fá skipverja í sýnatöku á þriðja degi veiðiferðar. En það er á skjön við það sem kom fram í Kastljósviðtali við sóttvarnarlækni í gær þar sem sóttvarnalæknir sagði að ekkert hafi bent til þess að um hópsmit væri að ræða. Allt frá öðrum degi veiðiferðar hafi skipstjórinn skipað mönnum í einangrun meðan þeir voru sem veikastir. Meðan skipverji var í einangrun þurfti klefafélagi hans að búa við það að sofa í sjónvarpsklefa án aðgangs að persónulegum munum sínum, s.s. hreinum fatnaði o.fl.“

Skeytingarleysi algert

„Skeytingarleysi útgerðar og/eða skipstjóra gagnvart heilsu og öryggi skipverja í umræddri veiðiferð virðist því hafa verið algert. Skipverjum var bannað að ræða veikindin út á við en máttu ræða við fjölskyldur. Ítrekað var að ræða ekki veikindin og á 3ju viku sjóferðar var sett á algert bann við að minnast á veikindin á samfélagsmiðlum eða við fréttamenn. Þannig var skipverjum haldið nauðugum og veikum við vinnu út á sjó, í brælu og lélegu fiskeríi á meðan Covid sýking herjaði á áhöfnina.“

Næstu skref Verk Vest er að leita samstarfs við önnur stéttarfélög sjómanna um borð í Júlíusi Geirmundssyni þar sem ljóst þykir að brotið hafi verið alvarlega gegn skipverjum. Verk Vest hefur verið í samráði við lögmenn félagsins um næstu skref. Allir áhafnarmeðlimir í Verk Vest hafa ákveðið að fela félaginu umboð til að  fara með sín mál er varða réttindi- og launamál. Þá hefur félagið fregnir af því að landað verði úr skipinu á morgun án þess að sótthreinsun á skipinu hafi farið fram.

 

DEILA