Tálknafjarðarhreppur óskar aðstoðar íbúa við gerð fjárhagsáætlunar

Tálknafjörður.

Tálknafjarðarhreppur hefur ákveðið að leitar til íbúa í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar 2021.

Óskað er eftir hugmyndum varðandi rekstur, hagræðingu, útgjöld, fjárfestingar og viðhald.

Hægt er að skila hugmyndum, ábendingum og tillögum með tölvupósti á netfangið talknafjordur@talknafjordur.is eða með því að koma með þær skriflegar á skrifstofu sveitarfélagsins.

Frestur til að koma hugmyndum á framfæri er til mánudagsins 19. október 2020.

Vegna Covid-19 verður ekki haldinn íbúafundur í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar í þetta skiptið og þessi leið farin þess í stað.

DEILA