Patreksskóli: nemendur gleðja börn í Úkraínu

Börnin í Patreksskóla sem tóku þátt í verkefninu jól í skókassa. Mynd: aðsend.

Hefð hefur skapast fyrir því á miðstigi í Patreksskóla að nemendur taki þátt í verkefninu Jól í skókassa. Verkefnið er á vegum KFUM og KFUMK og felst í því að gleðja börn í Úkraínu sem búa við mikla erfiðleika td á munaðarleysingjahælum eða sjúkrahúsum.

María Ósk Óskarsdóttir, kennari í Patreksskóla segir að meðal grunnþátta menntunar í aðalnámskrá grunnskóla sé lýðræði og mannréttindi. „Verkefni sem þetta er því tilvalið til þess að auka fjölbreytileika náms ásamt því að uppfylla hæfniviðmið aðalnámsskrár.“

Verkefnið „Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur Guðs í verki segir í kynningu á verkefninu á vefsíðu KFUM og KFUK. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa.
Fyrir jólin 2004 ákvað hópur ungs fólks innan KFUM & KFUK að láta reyna á verkefnið hér á landi. Undirtektirnar voru frábærar og söfnuðust rúmlega 500 kassar það árið. Verkefnið hélt svo áfram að spyrjast út og árið 2005 urðu skókassarnir 2600. Sú tala hefur síðan tvöfaldast því undanfarin ár hafa borist í kringum 5000 gjafir.

María Ósk sagði að verkefninu væri lokið í Patreksskóla og jólagjöfunum hefði þegar verið skilað til KFUM og KFUK.

DEILA