Ómerkt egg í fullelduðum kjúklingabringum

Matvælastofnun varar neytendur með eggjaofnæmi við neyslu á tilteknum Sous vide kjúklingabringum frá Stjörnufugli.

Varan inniheldur egg án þess að það komi fram á merkingum.
Fyrirtækið innkallar allar lotur með best fyrir dagsetningum fyrir 15.11.20, í samráði við Matvælastofnun.

Viðskiptavinir Krónunnar og Samkaupa sem keypt hafa vöruna og hafa ofnæmi eða óþol fyrir eggjum er bent á að neyta hennar ekki og skila í verslunina þar sem hún var keypt.

Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Stjörnufugls í síma 858-3400 eða á netfanginu addo hjá svinvirkar.is.

DEILA