Inga Sæland spyr ráðherra um strandveiðar

Birt hefur verið á vef Alþingis svar Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Ingu Sæland um strandveiðar árið 2020.

Alls beindi Inga átta spurningum til ráðherra þar sem vikið var að flestum hliðum strandveiða. Þeirra á meðal var skipting bátagerða á veiðunum, þ.e. smábáta í aflamarki, krókaaflamarki og báta eingöngu á strandveiðum.

55% voru eingöngu á strandveiðum – alls 369 bátar, 33 voru í aflamarki og 267 í krókaaflamarki.

Einnig var spurt um umframafla í þorski yfir „skammti“. Alls 172 tonn. 2,9% landana voru yfir „skammti“ eða alls 522 sjóferðir.

Nánar á vef Alþingis

DEILA