HG biðst afsökunar

Í yfirlýsingu frá Hraðfrystihýsinnu Gunnvör kemur fram að fyrirtækið telur að rétt hefði verið að tilkynna grun um smit um borð í Júlíusi Geirmundssyni ÍS  og biður hlutaðeigandi afsökunar og segir framkvæmdastjóri fyrirtækisins að það muni axla ábyrgð.

Yfirlýsingin:

„Í ljósi þeirra frétta sem birst hafa liðna daga um hópsmit skipverja um borð í Júlíusi Geirmundssyni ÍS 270 vill Hraðfrystihúsið-Gunnvör koma á framfæri eftirfarandi:

Fyrirtækið telur ljóst, líkt og áður hefur komið fram í fyrri yfirlýsingu, að rétt hefði verið að tilkynna grun um kórónuveiru um borð í skipinu til Landhelgisgæslunnar og láta þeim yfirvöldum eftir að meta hvort rétt væri að sigla skipinu til hafnar. Slík framkvæmd hefði enda verið í samræmi við þær leiðbeiningar, sem viðhafa ber í þessum aðstæðum, og SFS og stéttarfélög sjómanna komu sér saman um við upphaf kórónuveirufaraldursins. Því miður fórst það fyrir og ábyrgð á þeim mistökum mun fyrirtækið að sjálfsögðu axla. Fyrirtækið biður hlutaðeigandi jafnframt einlæglega afsökunar á þessum mistökum.

Það var aldrei ætlun útgerðar eða skipstjóra að stefna heilsu og lífi áhafnar skipsins í hættu og fyrirtækinu þykir þungbært að sitja undir ásökunum um að ekki sé hugað nógu vel að heilsu og öryggi starfsmanna. Ítrekað skal að fyrirtækinu þykir miður að ekki hafi verið brugðist við með réttum og viðeigandi hætti. Nú er verkefnið að styðja við þá áfhafnarmeðlimi sem glíma við veikindi og byggja upp á ný það traust sem hefur glatast á milli áhafnar og fyrirtækisins vegna atviksins.“

 

Einar Valur Kristjánsson,

Framkvæmdastjóri

DEILA