Haustrallið er hafið – Auglýst eftir tveimur togurum fyrir næsta ár

Stofnmæling botnfiska að haustlagi er hafin og stendur yfir næstu fjórar vikur. Tvö skip taka þátt í verkefninu; togarinn Múlaberg SI og rannsóknaskipið Árni Friðriksson. Togað verður á rúmlega 370 stöðvum umhverfis landið. Þetta mun vera í 25 skipti sem farið er í stofnmælingu botnfiska að haustlagi.

Verkefnið sem einnig er nefnt haustrall, hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti á hverju ári síðan 1996. Svæðinu er skipt í grunn- og djúpslóð og er togað niður á allt að 1300 m dýpi.

Helsta markmið er að fylgjast með breytingum á stofnstærð, aldri, fæðu, ástandi og útbreiðslu botnfisktegunda við landið. Erfðasýni verða tekin úr grálúðu sem verður einnig merkt. Athuganir verða gerðar á botndýrum og mat lagt á magn ýmiskonar rusls á sjávarbotni.

Sjö til tíu rannsóknamenn eru á hverju skipi auk áhafnar.

Fylgjast má með ferðum skipanna á https://skip.hafro.is/ og þar sjást einnig togstöðvar í haustrall.

Þá hafa Ríkiskaup, fyrir hönd Hafrannsóknastofnunar, auglýst eftir tilboðum vegna tímabundinnar leigu á tveimur togurum til stofnmælinga.

Um er að ræða útboð vegna NA svæðis og S svæðis til eins árs (2021) með möguleika á framlengingu til fleiri ára ef aðilar sannmælast um það. Gert ráð fyrir að verkefnið taki um þrjár vikur frá lokum febrúar fram í mars.

DEILA