Dýrafjarðargöng – Framvinda í vikum 40 & 41

Hér er samantekt af því helsta sem gerðist í vikum 40 & 41 við vinnu Dýrafjarðarganga.

 

Í göngunum var unnið við uppsetningu á búnaði og tengingum ásamt því sem unnið var við stjórnkerfi ganganna.

 

Vegmálun í göngum og utan ganga er lokið. Klárað var að leggja seinna lag klæðingar á veginn í Dýrafirði. Í Dýrafirði var meirihluti vegriða, sem eiga að koma þar, sett upp. Vegtenging sem liggur inn eftir Dýrafirði er því sem næst tilbúin og búið að leggja malarklæðingu á veginn sem er kominn en enn á eftir að klára tengingu að gamla veginum. Haldið var áfram með fyllingar yfir vegskála beggja vegna.

 

Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar verið er að reka niður stoðir fyrir vegrið, klæðingavinnu á vegi, vegtengingu inn eftir Dýrafirði og nokkrar myndir af veginum í Dýrafirði og í göngunum.

 

Fyrir hönd framkvæmdaeftirlits Dýrafjarðarganga

Baldvin Jónbjarnarson

DEILA