Aukin framlög til jöfnunar dreifikostnaðar raforku

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra

Í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2021, og fjármálaáætlun 2021-2025, koma fram áform ríkisstjórnarinnar um aukin framlög til jöfnunar dreifikostnaðar raforku, flýtingu á jarðstrengjavæðingu og þrífösun dreifikerfis raforku og úrbóta á varaafli.

„Þessi þrjú verkefni styðja öll við þá stefnu okkar að tryggja öllum landsmönnum jafnan aðgang að raforku. Síðasti vetur gerði öllum ljóst að innviðir okkar eru viðkvæmir og aðstaða landsmanna ólík gagnvart bæði orkuöryggi og orkuverði. Því er mikilvægt að stíga afgerandi skref til úrbóta eins og hér er gert,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.

Jöfnun dreifikostnaðar

Í samræmi við stefnu stjórnvalda um jöfnun orkukostnaðar á landsvísu er í frumvarpi til fjárlaga 2021, og fjármálaáætlun 2021 til 2025, kveðið á um 730 m.kr. hækkun á framlagi til jöfnunar á dreifikostnaði raforku á árinu 2021. Er þar annars vegar um að ræða hækkun á jöfnunargjaldi vegna verðbólgu (130 m.kr.) og hins vegar 600 m.kr. framlag úr ríkissjóði.

Frá upptöku jöfnunargjalds árið 2015 hefur dreifingarkostnaður haldið áfram að aukast í dreifbýli umfram kostnað í þéttbýli. Færri notendur eru í dreifbýli til að standa undir nauðsynlegum fjárfestingum í dreifikerfinu og hefur þróunin leitt til hækkana á gjaldskrám. Þörf fyrir aukið framlag til jöfnunar í dreifbýli hefur því vaxið á síðustu árum. Hins vegar er gert ráð fyrir að ákveðnu hámarki í fjárfestingarþörf í dreifbýli verði náð á næstu fimm árum.

Núverandi hlutfall jöfnunar dreifikostnaðar í dreifbýli, samanborið við þéttbýli, er tæp 50%. Samkvæmt þeim áformum sem kynnt voru í dag er miðað við að þetta hlutfall fari í 85% á næsta ári.

Jarðstrengjavæðing og þrífösun dreifikerfis

Í fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að 500 m.kr. verði varið úr ríkissjóði í að flýta fyrir jarðstrengjavæðingu og þrífösun dreifikerfis raforku. Er það í samræmi við tillögur átakshóps ríkisstjórnarinnar um úrbætur í innviðum sem kynntar voru fyrr á árinu í kjölfar þess fárviðris sem gekk yfir landið síðasta vetur.

Samkvæmt fyrri áætlunum lýkur jarðstrengjavæðingu dreifikerfisins eftir 15 ár en lagt er til að verkið verði unnið þrefalt hraðar.

DEILA