Ályktun þingflokks VG um Júlíus Geirmundsson

Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun:

 

„Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fordæmir vinnubrögð Hraðfrystihússins Gunnvarar sem viðhöfð voru um borð í frystitogaranum Júlíusi Geirmundssyni. Þær aðstæður sem sjómenn voru neyddir til að búa við um borð eru óboðlegar og ljóst að heilsa og velferð þeirra var fyrir borð borin. Mikilvægt er að tryggja að sjómenn geti sagt sögu sína og það er með öllu ólíðandi ef rétt reynist að skipverjum hafi verið meinað um það og slík vinnubrögð eiga ekki að fyrirfinnast á íslenskum vinnumarkaði. 

Þegar heimsfaraldur geisar skiptir heilsa fólks og líf öllu máli og fara vinnubrögð HG þvert á öll tilmæli almannavarna og heilbrigðisyfirvalda um hvernig skal bregðast við smiti um borð í skipi. Þá fara þau þvert á þær reglur sem sjómenn og útgerðir höfðu náð saman um að viðhafðar skildu í þessum aðstæðum.“

DEILA