Skjald­borg 2020 í Bíó Paradís

Skjald­borg—hátíð íslenskra heim­ilda­mynda verður haldin í samstarfi við Bíó Paradís helgina 18.-20. sept­ember 2020.

Skjaldborg—hátíð íslenskra heimildamynda er nú haldin í Reykjavík en ekki á Patreksfirði þar sem hún átti að vera í vor en var frestað vegna COVID.

Skjaldborg er uppskeruhátíð heimildamyndahöfunda og sérhæfir sig í að frumsýna íslenskar heimildamyndir. Reynsluboltar í faginu, byrjendur og hinn almenni áhorfandi koma saman á hátíðinni í skemmtilegu og skapandi samtali sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir þróun og miðlun íslenskrar heimildamyndagerðar.

Þrettán myndir verða frumsýndar á hátíðinni og sjö verk í vinnslu kynnt.

Heiðursgestur hátíðarinnar í ár er Hrafnhildur Gunnarsdóttir og verða sýndar þrjár myndir úr hennar höfundasafni auk þess sem Hafsteinn Gunnar Hafsteinsson mun leiða masterclass með Hrafnhildi.

DEILA