Þrátt fyrir að áhöfnin á sjómælingaskipinu Baldri sé að stærstum hluta bundin við sjómælingar að sumri og hausti kemur það fyrir að áhöfnin sinni útköllum á sviði leitar og björgunar.
Áhöfnin er þjálfuð til slíkra verka og Baldur vel búinn til björgunarstarfa.
Á dögunum barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar beiðni um að sækja þyrfti göngufólk inn á Veiðileysufjörð.
Skipið var á landleið til Ísafjarðar eftir nokkurra daga mælingar í Jökulfjörður og var statt út af Grunnavík.
Farþegabátur sem átti að sækja fólkið sóttist ferðin seint yfir djúpið enda norðaustan 15 m/s og kröpp alda. Um var að ræða erlent par, reynt útivistarfólk og vel búið, sem var á göngu á Hornströndum.
Þau höfðu m.a. fengið að láni talstöð svo unnt var að vera í sambandi við þau þegar áhöfnin nálgaðist. Léttbátur var sendur eftir fólkinu sem leitaði skjóls í tjaldi á meðan.
Þrátt fyrir hvassviðri gekk vel að ferja þau um borð í Baldur.
Farið var með fólkið til Ísafjarðar og á leiðinni þangað var mjög hvasst í djúpinu og lá vindur í norðaustan 20 m/s og fór upp í 30 m/s í hviðum.
Fólkið var afar þakklátt fyrir aðstoðina og viðtökurnar um borð.