Ísafjörður: Kallað eftir hugmyndum íbúa um framtíðarskipulag á Torfnesi

Starfshópur um framtíðarskipulag íþróttamannvirkja á Torfnesi hefur tekið til starfa.
Hlutverk nefndarinnar er meðal annars að útbúa þarfagreiningu og tillögur að framtíðarskipulagningu og heildstæðri uppbyggingu íþróttamannvirkja á Torfnesi, sérstaklega hvað varðar líkamsrækt og sundlaugaraðstöðu.

Einnig að gera tillögu til bæjarstjórnar um hönnun, byggingu, útboð og hugsanlega áfangaskiptingu verksins, ásamt rekstrar- og kostnaðaráætlun, á mögulega mismunandi útfærslum svæðisins.

Nefndin kallar eftir hugmyndum frá íbúum og er hægt að senda inn tillögur frá 14.-21. september 2020 á netfangið postur@isafjordur.is.

Mögulega verður einhverjum sem senda inn hugmyndir boðið að kynna þær nánar fyrir nefndinni á fundi.

DEILA