Á fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar í gær voru samþykktar nokkrar breytingar á skipan í nefndum bæjarins.
Tvær breytingar voru gerðar hjá Framsóknarflokknum.
Harpa Björnsdóttir var kosin aðalmaður í velferðarnefnd, í stað Tinnu Hlynsdóttur, sem fulltrúi B-lista Framsóknarflokks og Bragi Rúnar Axelsson, einnig fulltrúi B-lista Framsóknarflokks var kosinn sem formaður nefndarinnar í stað Tinnu.
Þá gerðu Framsóknarmenn breytingu í íþrótta- og tómstundanefnd. Kristján Þór Kristjánsson var kosinn aðalmaður í stað Antons Helga Guðjónssonar.
Loks gerði Í listinn breytingu í fræðslunefnd. Finney Rakel Árnadóttir var kosin sem varamaður í fræðslunefnd, í stað Arnhildar Lilýar Karlsdóttur.