Íbúaþing á Flateyri 2.-4. október 2020

Frá íbúafundi á Flateyri í vetur.

Dagana 2.-4. október er íbúum, fjarbúum og öðrum hagsmunaaðilum í Önundarfirði boðið til íbúaþings.

Það er nýráðinn verkefnastjóri fyrir Flateyri sem hefur veg og vanda af íbúaþinginu. Starfið var sett á laggirnar sem hluti af viðbrögðum stjórnvalda við snjóflóðinu á Flateyri í janúar. Skipuð var fimm manna verkefnisstjórn, tveir frá Ísafjarðarbæ, aðrir tveir frá íbúun Flateyrar og einn frá Vestfjarðastofu.

Hlutverk verkefnisstjórnar er að vinna að framfaramálum á Flateyri. Byggðastofnun verður til ráðgjafar út frá reynsla og aðferðarfræði um brotnar byggðir.

Staður og stund:

Íbúaþingið fer fram í íþróttahúsinu á Flateyri. Fundartímar eru eftirfarandi:

Föstudaginn 2. október kl. 18-20
Laugardaginn 3. október kl. 10-17
Sunnudaginn 4. október kl. 11-17

Á meðan á þinginu stendur verður boðið upp á léttar veitingar. Ekki er nauðsynlegt að taka þátt alla helgina.

Umsjón með þinginu hefur Kristrún Lind Birgisdóttir, ráðgjafi hjá Tröppu.

Skráning:

Skráning fer fram í tölvupósti: helenaj@isafjordur.is eða í síma 661 7808.

Íbúar, fjarbúar og aðrir sem bera hag byggðarlagsins á Flateyri og í Önundarfirði fyrir brjósti eru hvattir til að fjölmenna til íbúaþings.

DEILA