Flateyri: Lýðskólinn settur í þriðja sinn – nýr valkostur

Lýðaskólinn á Flateyri var settur í þriðja sinn á laugardaginn. Athöfnin fór fram í Félagsheimilinu á Flateyri. Um þrjátíu nemendur hefja nám núna í haust. Í setningarræðu Runólfs Ágústssonar, formanns stjórnar skólans kom fram að draumur hans væri  að reyna að breyta skólakerfinu og afstöðu fólks til menntunar og þess hvað menntun raunverulega er.

Sagði Runólfur að þeir sem standa að hafi sett sér þessi markmið:

„Þar vildum við skapa nýjan valkost í íslensku menntakerfi. Valkost sem væri utan þess hefðbundna, utan kerfis þar sem gildi náms og menntunar yrðu metin öðruvísi en almennt í skólum.
Í stefnuskránni segir að Lýðskólinn á Flateyri sé samfélag nemenda og kennara sem býður fólki tækifæri til að þroskast og mennta sig í samstarfi við íbúa á Flateyri. Einkunnarorð skólans eru frelsi, þekking og þroski.
Í Lýðskólanum á Flateyri hefur fólk frelsi til menntunar út frá sínum einstaklingsbundnum forsendum. Því byggir skólinn ekki á prófum, einkunnum eða gráðum, heldur skapar hann nemendum sínum aðstæður og umgjörð til náms og menntunar. Ábyrgð á náminu er nemandans þar sem megináherslan er á að uppgötva og styrkja þá einstöku hæfileika sem hver og einn hefur í umhverfi sem er fullt af áskorunum en um leið ríkt af stuðningi, endurgjöf og samvinnu.
Í Lýðskólanum á Flateyri sækir fólk sér þekkingu, eingöngu þekkingarinnar vegna. Hana öðlast nemendur með því að ræða hluti, prófa og framkvæma. Innsýn, reynsla og færni verður til með sjálfsskoðun, samvinnu, frumkvæði og forvitni.

Við Lýðskólann á Flateyri mætast himinn og jörð, nútíð og saga, framtíðarsýn, reynsla og staðreyndir. Viðfangsefnin ögra og reyna á getu fólks jafnt andlega sem líkamlega. Í því felst áskorun sem leiðir til umbreytingar. Hér kynnist fólk og þroskast. Lögð er áhersla á samveru, sjálfsskoðun, sjálfsrækt og lífsleikni þar sem einstaklingar bera virðingu hver fyrir öðrum ásamt því að bera ábyrgð á sjálfum sér og þátttöku sinni í námi og samfélagi. Forsenda þess er samábyrgð, meðvitund og virkni.

Lýðskólinn á Flateyri vill hafa jákvæð áhrif á umhverfi, samferðamenn og samfélag nær og fjær. Okkur er umhugað um sjálfbærni, samspil umhverfis, efnahags, samfélags og velferðar og berum virðingu fyrir þörfum annarra um leið og við leyfum sjálfum okkur að njóta okkar. Það er á okkar ábyrgð að samfélagið sem við búum í blómstri. Í lýðskólanum stuðlum við að þróun einstaklingsins og samfélagsins með því að gefa bæði og þiggja.“
DEILA