BRYNDÍS SCHRAM: Brosað gegnum tárin

Út er komin hjá bókaútgáfunni HB Av bókin Brosað gegnum tárin.

Þessa bók má kalla framhald af metsólubók Bryndísar „ Í sól og skugga“ sem kom út 2008.
Bókin kemur nú út í kjölfar stormasams kafla í lífi Bryndísar og Jóns Baldvins.

Á bókakápu segir:

„BRYNDÍS SCHRAM var ung að árum þjóðkunn og lífshlaup hennar ævintýri líkast.

Frá æskuárum hefur hún verið í órofa bandalagi við mesta ástríðupólitíkus landsins.

Saman hafa þau unnið stóra sigra á innlendum og alþjóðlegum vettvangi.

Samt hefur hún sjaldan setið á friðarstóli. Hvað eftir annað var hún hrakin úr starfi út af pólitík. Óvægin fjölmiðlagagnrýni eða voru það pólitískar ofsóknir sem rötuðu jafnvel inn í réttarsali.

Þegar hið friðsæla ævikvöld“ nálgaðist, skók fjölþjóðleg forræðisdeila um ömmubarn hennar líf fjölskyldunnar árum saman.

Stóra sorgin í lífi hennar var að missa dóttur sína í blóma lífs.
Og fjölskylduharmleikur sárari en orð fá lýst varpar dimmum skugga á ævikvöldið.“

DEILA