Árnastofnun í Edinborgarhúsinu

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum skýtur upp kollinum í Edinborgarhúsinu á Ísafirði dagpart laugardaginn 26. september 2020 kl. 14:00 – 16:00.

Boðið verður upp á skrifarasmiðju í líkingu við þær sem tíðkuðust á miðöldum.

Þar geta börn á öllum aldri prófað að skrifa með fjaðurpenna á kálfskinn.

Á staðnum verða einnig veittar upplýsingar um íslenskunám fyrir þá sem hafa annað móðurmál en íslensku, nýja og fallega upplifun á íslenskum orðaforða og spjall við starfsmenn stofnunarinnar.

Hlutverk Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum er að vinna að rannsóknum í íslenskum fræðum og skyldum fræðigreinum, einkum á sviði íslenskrar tungu og bókmennta.

DEILA