200 skólar á grænni grein

Skólar á öllum skólastigum taka þátt í grænfánaverkefninu á vegum Landverndar.

Skólar á grænni grein vinna að menntun til sjálfbærni og hafa jákvæð áhrif á nærsamfélagið.

Um 200 skólar á Íslandi taka þátt í verkefninu Skólar á grænni grein.

Eini grunnskólinn á Vestfjörðum sem tekur þátt í verkefninu er Tálknafjarðarskóli en leikskólarnir í Vesturbyggð, á Hólmavík, Reykhólum og Suðureyri ásamt Eyrarskjóli á Ísafirði eru þátttakendur.

Verkefnið hefur víðtæk áhrif og taka skólar ábyrga afstöðu til umhverfismála.
Með því að innleiða raunhæfar aðgerðir og vinna á markvissan hátt að sjálfbærni í skólanum sýnir reynslan að skólar geta sparað talsvert í rekstri.

Nemendur leika stórt hlutverk í verkefninu og er það markmiðið að þeir leiði það áfram, meti stöðu umhverfismála, setji sér markmið og sjái til þess að þau séu unnin.

Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning fyrir skóla sem sýna árangur í umhverfismálum og menntun til sjálfbærni. Grænfánaskóla má finna í 68 löndum víða um heim og eru skólar á Íslandi framarlega í nemendavæðingu verkefnisins.

DEILA