Vesturbyggð: hafnar langtímasamningum um hafnargjöld

Frá Bíldudalshöfn. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson

Bæjarstjórn Vesturbyggðar hefur hafnað erindum frá Arnarlax hf og Arctic Fish ehf um langtímasamninga vegna hafnagjalda.

Arnarlax hf óskaði  25. febrúar 2020 eftir viðræðum um langtímasamning vegna þjónustu og notkunar hafna Vesturbyggðar. Erindið var tekið fyrir á fundi hafna- og atvinnumálaráðs  þann 19. mars 2020. Þar var óskað eftir kynningu á langtímaáformum fyrirtækisins. Forstjóri fyrirtækisins kynnti langtímaáform á fundi hafna- og atvinnumálaráðs 13. júlí.

Hafna- og atvinnumálaráð Vesturbyggðar  telur með vísan til kynningar fyrirtækisins um langtímaáform, þá sé að svo stöddu ekki forsendur til viðræðna um langtímasamning skv. hafnalögum um þjónustu og notkun hafna Vesturbyggðar enda stendur nú yfir vinna við endurskoðun á ákvæðum hafnalaga sem ekki liggur fyrir hvenær muni ljúka.

Hafna- og atvinnumálaráð bendir ennfremur á að samkvæmt núgildandi gjaldskrá hafnasjóðs er nú þegar veittur afsláttur af aflagjöldum vegna fiskeldis.

Bæjarstjórnin hefur staðfest afgreiðslu hafna- og atvinnumálráðsins.

Arctic Fish ehf. óskaði sömuleiðis 20. febrúar 2020 eftir viðræðum um langtímasamning vegna aflagjalda. Framkvæmdastjóri og fjármálastjóri Arctic Fish kynntu langtímaáform fyrirtækisins á fundi hafna- og atvinnumálaráðs 18. maí.

Hafna- og atvinnumálaráð afgreiddi erindi Arctic Fish með sambærilegum hætti og erindi Arnarlax hf  og telur að svo stöddu séu ekki forsendur til viðræðna um langtímasamning skv. hafnalögum um hafnagjöld enda stendur nú yfir vinna við endurskoðun á ákvæðum hafnalaga sem ekki liggur fyrir hvenær muni ljúka auk þess sem nú þegar veittur afsláttur af aflagjöldum vegna fiskeldis.

 

DEILA