Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út vegna vélarvana báts við Ingólfsgrunn

Áhöfnin á TF-GRO, þyrlu Landhelgisgæslunnar, var kölluð út á þriðja tímanum í gær vegna vélarvana strandveiðibáts sem rak að skeri við Ingólfsgrunn á Húnaflóa.

Þyrlan var á flugi við Snæfellsnes þegar útkallið barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar.
Annar strandveiðibátur í grenndinni var einnig beðinn um að halda á staðinn til aðstoðar.

Einn var um borð í bátnum og tókst honum að setja akkeri bátsins út sem kom í veg fyrir að báturinn steytti á skerinu.

Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á svæðið þegar klukkuna vantaði fimm mínútur í þrjú.

Þyrlan var til taks á meðan báturinn var tekinn í tog af strandveiðibátnum sem kom til aðstoðar.
Vel gekk að koma línu á milli bátanna en þeir halda á Drangsnes.

DEILA