Slökkvilið Ísafjarðarbæjar fær nýja bíla

Slökkvilið Ísafjarðarbæjar hefur tekið á móti tveimur nýjum bifreiðum, annars vegar slökkvibíl og hins vegar sjúkrabíl.

Sjúkrabíllinn er einn af 25 nýjum sjúkrabílum sem Rauði kross Íslands fékk afhenta um miðjan mánuðinn, en Rauði krossinn á og rekur sjúkrabílaflota landsins.

Nýju sjúkrabílarnir eru af gerðinni Mercedes Benz Sprinter og eru með svokallaðri Battenburg-merkingu sem ætlað er að auka sýnileika bifreiðanna enn frekar.
Sjúkrabíllinn verður tekinn í notkun strax í þessari viku.

Slökkvibíllinn er af gerðinni Ford F550 og er sérhannaður fyrir ganganotkun.

Bíllinn verður staðsettur á Þingeyri til að mæta aukinni öryggis- og viðbragðsskyldu slökkviliðsins með tilkomu Dýrafjarðarganga, sem áætlað er að opni í október 2020.

DEILA