Opnað fyrir umsóknir um styrki fyrir nýsköpunar- og samfélagsverkefni á Flateyri

Auglýst er eftir umsóknum úr Þróunarverkefnasjóði fyrir styrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Flateyri, sem verkefnisstjórn veitir úr.

Allir sem búa yfir hugmyndum að frumkvæðis- og/eða samfélagverkefnum í samfélaginu á Flateyri eru hvattir til að sækja um.

Athugið að vönduð umsókn eykur líkur á úthlutun úr Þróunarsjóði.
Umsækjendum er bent á að kynna sér úthlutunarreglur sjóðsins áður en hafist er handa við að fylla út umsókn.

Styrkhæf verkefni eru rannsóknar-, þróunar- og nýsköpunarverkefni þar sem markvisst er stefnt að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu.
Einnig er heimilt að styrkja stofnfjárfestingu í hvers konar verkefnum að því gefnu að þau raski ekki samkeppni á svæðinu.
Enn fremur samfélagseflandi verkefni önnur en þau sem teljast til lögbundinna og/eða hefðbundinna verkefna ríkis eða sveitarfélaga.

Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2020 kl. 16.00.
Sótt er um á https://www.vestfirdir.is/is/moya/formbuilder/index/index/nyskopunar-og-samfelagsverkefni-a-flateyri

DEILA