Mikill munur á andlitsgrímum, bæði hvað varðar verð og gæði

Verðlagseftirlit ASÍ hefur kannað verð á þriggja laga einnota andlitsgrímum í hinum ýmsu verslunum, netverslunum, matvöruverslunum og apótekum svo eitthvað sé nefnt.

Úrval og framboð af andlitsgrímum er mjög misjafnt milli verslana og mikill verðmunur er á slíkum andlitsgrímum. Lægsta stykkjaverðið í könnuninni var að finna í Costco, 42 kr. stk eða 2.089 kr., fyrir pakka með 50 grímum.
Hæsta stykkjaverðið var í Eirberg, 298 kr. gríman eða 5.950 kr. fyrir pakka með 20 grímum. Lægsta verðið á andlitsgrímum sem seldar voru í stykkjatali var í Krambúðinni, 49 kr. stk en það hæsta í Lyfju, 209 kr. stk.

Grímurnar sem voru til skoðunar í könnuninni voru allar þriggja laga og einnota en eru ekki endilega alveg eins þar sem þær koma frá mismunandi framleiðendum.
Gæðamunur getur því verið á grímum hjá þeim söluaðilum sem könnunin nær til. Ekki er lagt mat á gæði á þeim grímum sem birtast í könnuninni þar sem einungis þar til bærir sérfræðingar geta skorið úr um hvort gæði gríma sé fullnægjandi.

Vert er að taka fram að Neytendastofa sér um eftirlit með andlitsgrímum og hefur stofnunin orðið vör við að gæðum á andlitsgrímum sé í sumum tilfellum ábótavant og hefur töluvert magn af grímum verið tekið úr umferð vegna þess.

Þessi verðkönnun gefur innsýn inn í verð og framboð á þriggja laga einnota andlitsgrímum á markaðnum í dag. Verð og framboð á andlitsgrímum breytist þó ört og hvetjum við fólk til að fylgjast vel með, m.a. inn á hópi Verðlagseftirlits ASÍ „Vertu á verði“ en þar geta neytendur skráð niður upplýsingar um verð á andlitsgrímum og fylgst þannig með markaðnum.

DEILA