Kirkjan gerir upp misrétti gagnvart samkynhneigðum

Þjóðkirkjan í samstarfi við Samtökin ´78 boðar til kynningarfundar í dag á verkefninu Ein saga – eitt skref. Þorbjörg Þorvaldsdóttir formaður Samtakanna 78 mun segja nokkur orð í upphafi og síðan mun biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, taka til máls.

Tilgangur verkefnisins er að gera upp og læra af sögu misréttis gagnvart hinsegin fólki innan kirkjunnar. Fyrsta skrefið verður að safna persónulegum reynslusögum af fordómum og andstöðu Þjóðkirkjunnar við réttindi hinsegin fólks í gegnum árin.

Sett hefur verið upp sögusíða þar sem hver og einn, sem geymir sögu sem hann/hún/hán vill deila, getur fyllt út form og skilað inn. Sögunum verður safnað saman af Samtökunum ´78.

Slóð sögusíðunnar er: www.einsaga.samtokin78.is

Næsta vor verða síðan sögurnar gerðar opinberar. Sögurnar verða hengdar upp í kirkjum landsins, til vitnisburðar og lærdóms. Til vitnis um erfiða sögu sem mikilvægt er að endurtaki sig ekki, en einnig um þjáningu, baráttu og vilja hinsegin fólks til að öðlast viðurkenningu, frelsi og mannréttindi.

Upphaflega stóð til að viðburðurinn yrði opinn öllum, en vegna Covid verður viðburðinum streymt á netinu og verður aðgengilegur á www.kirkjan.is og www.samtokin78.is og hefst kl. 13.00.

Klukkan 14.00 verður regnbogafáninn dreginn að húni við kirkjur víðs vegar um landið.

bryndis@bb.is

DEILA