Keyptu milljónamiða á Patreksfirði

Ný­lega höfðu hjón af Vest­ur­landi sam­band við Íslenska get­spá eft­ir að hafa unnið fyrsta vinn­ing í lottó-út­drætti um miðjan júlí.

Hjónin höfðu haft viðkomu á Vesturrestaurant á Patreksfirði um miðjan júlí, ákváðu þar að skella sér á 10 raða lottómiða enda þrefaldur pottur og mikið í húfi.

Lukkudísirnar voru svo sannarlega með þeim í liði þar sem þessi happamiði reyndist vera með allar lottótölur vikunnar réttar og fengu þau óskiptan 1. vinning upp á rúmlega 33 milljónir króna.

DEILA