Ísafjörður: Fjallgöngur í skólabyrjun

Nemendur 10. bekkjar gengu frá Flæðareyri og yfir til Grunnavíkur

Á hverju hausti fara allir árgangar Grunnskólans á Ísafirði í fjallgöngur eða gönguferðir.

Í upphafi skólagöngunnar er byrjað á að fara upp í Stórurð, en svo smám saman verður gangan erfiðari, en hver árgangur fær úthlutað sinni gönguleið.

Þegar grunnskólagöngunni lýkur hafa því allir nemendur kynnst mörgum fjallgönguleiðum hér í kring s.s. upp í Naustahvilft, á Hnífa, Sandfell og Kistufell svo fátt eitt sé nefnt.

Þessa dagana skunda nemendur upp um fjöll og firnindi og fór 5. bekkur hjólandi inn í Tungudal í gær og gekk þaðan upp með Buná.

Nemendur 6.bekkjar voru á svipuðum slóðum og gengu frá Seljalandsdal og upp á Sandfell.

Nemendur 10.bekkjar sigldu í fyrradag norður í Jökulfirði og gengu frá Flæðareyri til Grunnavíkur, þar sem þeir gistu í tjöldum. Hópurinn kom svo heim í gær.

Fjallgöngurnar eru ætlaðar til að nemendur fræðist um nærumhverfi sitt og náttúruna, en einnig eru þær mikilvægar til að efla samstöðu og félagsþroska nemenda.

DEILA