Dýrafjarðargöng. Vinna síðustu 3 vikur.

Unnið var við fyllingar undir steypta stétt sem kemur milli kantsteins og veggjar í göngunum og er þeirri vinnu nánast lokið.

Unnið var í tæknirýmum, fjarskiptahúsum og neyðarrýmum við lagnavinnu og tengingar. Hurðum var komið fyrir í neyðarsímaklefum sem eru í tæknirýmunum.
Að auki var unnið við að koma upp skiltafestingum, skiltum og neyðarsímaskápum og tengingu að þeim. Uppsetning ljósa fyrir veglýsingu í göngunum er lokið og unnið að því að tengja ljósin. Fyrstu ljósin voru kveikt þann 17 júlí. Búið er að koma fyrir ljósastæðum fyrir kantlýsingu og ídráttarrörum í þau.

Unnið var við fláafyllingar í veginum í Arnarfirði ásamt jöfnun undir neðra burðalag. Haldið var áfram með að keyra efni í neðri hluta efra burðarlags í syðri hluta vegarins og beggja vegna við Hófsárbrú. Að auki var unnið við efnisvinnslu í Arnarfirði. Í Dýrafirði var jafnað undir neðri hluta efra burðarlags frá gatnamótum við núverandi þjóðveg og inn eftir firðinum og byrjað að leggja neðri hluta efra burðarlags. Eitt vegræsi var sett niður í Dýrafirði og grafið fyrir og gert tilbúið fyrir stálplöturæsi sem Kjaransstaðaá mun renna í undir veginum og aðeins byrjað á samsetningu á ræsinu.

Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar kveikt var á vegljósum, fyllingar undir steypta stétt, vegagerð í Arnarfirði og neyðarsímaskáp í göngunum.

DEILA