Áform kynnt um lög um íslenska alþjóðlega skipaskrá

Flestar siglingaþjóðir í Evrópu reka alþjóðlegar skipaskrár og veita ýmsar skattaívilnanir til þess að vera samkeppnishæfar við að halda skipum í eigu ríkisborgara sinna á skrá.

Í dag eru öll kaupskip íslenskra aðila skráð á skipaskrá erlendra ríkja. Síðustu þrjátíu ár hefur skráningum fækkað jafnt og þétt en árið 1987 voru 39 kaupskip skráð á Íslandi.

Markmiðið með frumvarpinu er að móta samkeppnishæft rekstrarumhverfi fyrir kaupskipaútgerð og stuðla að skráningu kaupskipa á Íslandi.

Áformað er að sameina öll ákvæði um skráningu kaupskipa og skattlagningu kaupskipaútgerðar í einni heildarlöggjöf.
Nýju lögin kæmu í stað gildandi laga frá 2007 um íslenska alþjóðlega skipaskrá.

Lögin eru til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda og er umsagnarfrestur frá 21.08.2020 og til 07.09.2020.

DEILA