Vestri – Grindavík á laugardaginn

Á laugardaginn er fyrsti heimaleikur Vestra þetta tímabilið.

Leikurinn hefst klukkan 14:00 og er gegn Grindavík.

Um hörku leik er að ræða, þar sem Grindavík er spáð 2. sætinu í deildinni í ár. Komu niður í fyrra og ætla sér beint aftur upp.

Vegna smitvarna, þá verður grænmerkta svæðið hérna á myndinni aðeins ætlað leikmönnum og starfsfólki leiksins.

Gönguleiðir að stúkunni má hérna sjá rauðmerktar.

Að sjálfsögðu mun Viðburðastofa Vestfjarða sýna leikinn í þráðbeinni og hefst útsendingin klukkan 13:40 með umræðum og viðtölum. Hægt er að horfa hérna:  https://www.youtube.com/watch?v=ri2ojknCwIQ

DEILA