Trékyllisheiði: Göngufólkið fundið

Rétt fyrir klukkan 17 í dag fundu björgunarsveitarmenn göngufólkið á Trékyllisheiði við Búrfelli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.

Þau báru sig nokkuð vel en voru orðin blaut og köld enda hafði ringt mikið fyrr um daginn. Björgunarsveitafólkið gaf þeim heitt að drekka og nýbakaðar kleinur, þau hresstust fljótt og ákváðu að fara í fylgd björgunarsveitar til byggða. Komu þau í Norðurfjörð nú rétt fyrir átta, þar geta þau gist, þurrkað farangurinn sinn og haldið ferðalaginu áfram.

 

DEILA