Tiramisu marengsterta

Í því tíðarfari sem nú er gæti verið gott að fara í tertubakstur. Uppskriftin sem hér fylgir er fengin af vefsíðu Mjólkurvinnslunnar Örnu í Bolungarvík.

Tiramisu marengsterta sameinar tvo dásamlega eftirrétti í einni glæsilegri og heldur betur ljúffengri tertu. En Linda segir kaffi unnendur og Tiramisu elskendur eftir að falla kylliflatir fyrir þessari, þar erum við svo sannarlega sammála henni!

Hráefni sem þú þarft:
4 eggjahvítur
130 g púðursykur
90 g sykur
70 g Rice Crispies
600 ml rjómi frá Örnu Mjólkurvörum
500 g mascarpone ostur
70 g flórsykur
1 tsk vanilludropar
125 g Lady Finger kexkökur
150 ml kaffi
U.þ.b. 2 msk kakó

Aðferð:
1.Byrjið á því að kveikja á ofninum og stilla á 140ºC og stilla á undir og yfir.
2.Best er að þeyta eggjahvíturnar í alveg tandurhreinni stál skál (smá fita í skálinni getur gert það að verkum að þær þeytast ekki eða mjög illa). Þeytið eggjahvíturnar og þegar þær byrja að freyða setjið þá púðursykurinn og sykurinn út í og þeytið þar til eggjahvíturnar eru stífþeyttar. Þið vitið að eggjahvíturnar eru tilbúnar þegar þið dýfið þeytaranum ofan í eggjahvíturnar og kippið upp aftur, eggjahvíturnar á þeytaranum eiga ekki að hreyfast.
3.Setjið Rice Crispies út í og blandið saman með sleikju.
4.Teiknið tvo hringi á smjörpappír (best að taka disk sem er 22 cm í þvermál og teikna meðfram diskinum) snúið pennastriks hliðinni niður og setjið deigið á smjörpappírinn inn í hringinn. Skiptið deiginu á milli smjörpappíranna og sléttið.
5.Bakið í 40 mín og slökkvið svo á ofninum og leyfið kökunum að kólna með ofninum (sniðugt að gera kökuna að kvöldi og láta kólna yfir nótt og þá er kakan tilbúin næsta dag, en það er alls ekki nauðsynlegt).
6.Setjið kaffið í frekar stórt eldfast mót (nógu stórt svo allar lady fingers kökurnar passi á botninn), raðið lady fingers kökunum í formið og snúið þeim strax við til þess að þær dragi í sig kaffið báðum megin.
7.Þeytið rjómann.
8.Setjið mascarpone ostinn í skál ásamt flórsykri og vanilludropum, þeytið varlega með handþeytara (ekki rafmagns). Setjið ostinn út í rjómann og blandið saman með handþeytaranum.
9.Setjið örlítið af rjóma á kökudisk og annan marengsbotninn á kökudiskinn. Setjið helminginn af rjómanum á botninn og raðið svo lady fingers kökunum yfir.
9.Sigtið kakó yfir. Leggið seinni marengsbotninn yfir og restina af rjómanum, sigtið kakóið yfir.

Að lokum er bara að njóta!

Uppskrift og myndir, Linda Ben

DEILA