Þingeyrarkirkja

Þingeyrarkirkja er í Þingeyrarprestakalli í Vestfjarðaprófastsdæmi.

Prestssetur hefur verið á Þingeyri frá árinu 1915 og útkirkja á Hrauni.

Núverandi steinkirkja var byggð 1910-1911 eftir teikningum Rögnvaldar Ólafssonar, húsameistara ríkisins og Dýrfirðings.

Hann réði öllu um gerð hennar og engu hefur verið breytt síðan.
Kirkjan er úr steinsteypu og Rögnvaldur lét hana snúa í norður-suður til að hún tæki sig betur út frá sjó séð. Þórarinn B. Þorláksson málaði altaristöfluna (Jesús blessar börnin; landslag líklega úr Dýrafirði), sem var gjöf frá Gramsverslun eins og lóðin fyrir kirkjuna, og Ríkharður Jónsson skar út skírnarsáinn.

Skírnarskálin er forn og fengin úr Sandakirkju auk tveggja ljósastikna frá árinu 1656. Margir aðrir gamlir gripir eru úr Sanda- og Hraunskirkjum.

Gréta og Jón Björnsson myndskreyttu og máluðu kirkjuna 1961, m.a. mynd af hl. Nikulási vinstra megin altarisins. Hægra megin er mynd af Pétri postula. Halla Haraldsdóttir, glerlistakona, gerði steindu gluggana þrjá í kórgafli.

Svanhildur Hjartar, móðir Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrverandi forseta, saumaði fagran altarisdúk, sem var gefinn kirkjunni.
Móðurafi Ólafs, Ólafur Hjartar, var lengi meðhjálpari í kirkjunni og Ólafur Ragnar fylgdi oft afa sínum til kirkju, því að hann var að hluta til alinn upp hjá móðurforeldrum sínum.

DEILA