Skipað í stjórn Minjasjóðs Önundarfjarðar

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar samþykkti í gær  að skipa þær Jónu Símoníu Bjarnadóttur og Helenu Jónsdóttur sem fulltrúa Ísafjarðarbæjar í stjórn Minjasjóðs Önundarfjarðar.

Ágreiningur var um skipanina og Nanný Arna Guðmundsdóttir fulltrúi Í listans lagðist gegn henni með svohljóðandi bókun:

„Fulltrúi Í-listans í bæjarráði getur ekki samþykkt þessa tilnefningu þar sem hún brýtur í bága við nýsamþykkta mannréttindastefnu Ísafjarðarbæjar, en samkvæmd þriðju grein hennar segir „við skipan í nefndir, ráð og stjórnir á vegum sveitarfélagsins skal þess gætt að hlutfall kynja sé sem jafnast og ekki minna en 40% þegar um fleiri en þrjá fulltrúa er að ræða. Við tilnefningu skal leitast við að veita öllum tækifæri til þátttöku og mikilvægi fjölbreytni höfð að leiðarljósi.“

Minjasjóður Önundarfjarðar á m.a. húseignina þar sem bókaverslunina Bræðurnir Eyjólfsson á Flateyri er.

DEILA