Kristjana Stefáns og Svavar Knútur í Skrímsla­setrinu í kvöld

Úr drunga og doða sóttkvía og -kvíða rís söngur og gleði eins og fuglinn Fönix úr öskunni.

Kristjana Stefáns og Svavar knútur munu geysast um landið í júlí næstkomandi á sinni árlegu sumartónleikaferð undir yfirskriftinni: „Með Faðmlög í farteskinu“

Kristjana og Svavar Knútur munu á ferð sinni heimsækja alla helstu landsfjórðungana og bæta fyrir þyngsl vormánaðanna sem skriðu hjá í móki samkomubanns með húmor og hlýju, krúttlegum kvöldsöngvum, angurværum Abbalögum og sígildum söngperlum.

Þá munu sagðar sögur, lesin ljóð og klassísk íslensk kvöldvökustemmning höfð í hávegum. Það verður stutt í hláturinn og líka í tárin, enda víða komið við í lystigarði mannlegrar tilvistar.

Kristjana og Svavar hafa síðan 2008 haft unun af því að syngja saman dúetta og komið fram víða um land við gríðargóðar undirtektir. Nú ferðast þau um landið þvert og endilangt með splunkunýja dúettaplötu í farteskinu, en hún ber nafnið „Faðmlög“.

Tónleikarnir í Skrímslasetrinu hefjast fimmtudagskvöld kl. 21.00.

DEILA