Kona í sjálfheldu í Óshyrnu

Bolungavíkurhöfn og Óshlíðin í baksýn. Mynd: Kristinn H. Gunnarsson.

Upp úr sex í kvöld voru björgunarsveitir í Ísafjarðardjúpi kallaðar út vegna konu sem er í sjálfheldu í Óshyrnu við Bolungarvík. Konan virðist hafa verið í fjallgöngu en óskaði eftir aðstoða þar sem hún kemst ekki niður að sjálfsdáðum.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsbjörgu.

 

Björgunarsveitarmenn eru komnir á svæðið og hafa náð að staðsetja konuna. Þeir eru nú að vinna sig upp fjallshlíðina til að komast til hennar og aðstoða hana niður.

DEILA