Ísafjarðarbær: skorar á Rauða krossinn að draga lokun til baka

Bæjarráð Ísafjarðarbæjar harmar þá ákvörðun RKÍ að loka starfsstöð sinni á svæðinu og mótmælir því harðlega. Í ályktun bæjarráð frá því í gær segir:

„Mikilvægi starfstöðvar á svæðinu hefur margsannað gildi sitt í þeim áföllum sem svæðið hefur orðið fyrir í gegnum tíðina í tengslum við náttúruhamfarir. RKÍ hefur því gegnt lykilhlutverki í þeim áföllum sem svæðið hefur orðið fyrir og hefur Ísafjarðarbær styrkt samtökin fjárhagslega, síðast í tengslum við snjóðflóðið á Flateyri s.l. vetur. Svæðið fór einnig illa út úr COVID 19 faraldrinum og þar skipti miklu máli aðkoma starfsmanna RKÍ að aðgerðum viðbragðsaðila.
Þessi ákvörðun um að loka starfsstöð RKÍ á svæðinu er ekki í neinu samræmi við nýsamþykkta stefnu samtakanna þar sem eitt af yfirlýstum markmiðum er að færa starf RKÍ enn nær heimabyggð. Þar að auki er ákvörðunin ógagnsæ og órökstudd og ekkert samráð eða samtal átti sér stað við aðila í heimabyggð í aðdraganda uppsagnanna.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar skorar á yfirstjórn RKÍ að draga þessi áform til baka og frekar verði stefnt að því að efla starfsstöðvarnar víðsvegar um landið í framtíðinni.“

DEILA