Ísafjarðarbær: aðgerðir í sundlaugum vegna covid19

Í ljósi aðstæðna þarf  að grípa til ráðstafana er varðar  sundlaugar Ísafjarðarbæjar. Þær eiga að tryggja að gestir geti haft tveggja metra bil á milli sín í öllum rýmum með fjöldatakmörkun í samræmi við stærð hvers rýmis. Út frá þessu er ljóst að töluverðar raskanir verða. Nýjar upplýsingar verða tilkynntar fyrir kl 12:00 föstudaginn 31.júlí segir í tilkynningu frá Ísafjarðarbæ.

DEILA