Gul viðvörun frá Veðurstofunni

Meðfylgjandi mynd er síðan 2014 þegar að aurskriða lokaði veginum á milli Ísafjarðar og Hnífsdals.

Spáð er talsverðri úrkomu á Vestfjörðum í dag og á morgun.

Vaxandi norðaustanátt, 15-23 m/s síðdegis en norðan 13-20 á morgun.

Snarpar vindhviður við fjöll, varasamt fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.
Talsverð eða mikil rigning, einkum norðan til.

Búast má við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum og hætta á flóðum og skriðuföllum.

Einnig er aukið álag á fráveitukerfi. Fólk er hvatt til að huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón. Hætta er á skriðum og grjóthruni í bröttum hlíðum.

DEILA