GÖNGUHÁTÍÐ Í SÚÐAVÍK UM VERSLUNARMANNAHELGI

Um verslunarmannahelgina verður hin skemmtilega gönguhátíð í Súðavík haldin í fimmta skipti. Fjölbreyttar göngur verða á dagskrá fyrir fólk á öllum aldri og fjörugar uppákomur á kvöldin.

Gönguhátíðin er haldin í samvinnu Göngufélags Súðavíkur, Súðavíkurhrepps og gönguklúbbsins Vesens og vergangs.

Hér eru drög að dagskrá hátíðarinnar. Vegna veðurs og covid getur dagskráin breyst en tilkynningar þar um koma á facebook síðunni https://www.facebook.com/gonguhatid/

Fimmtudagur 30. júlí

Off venue
Kl. 20:00 Barsvar í Melrakkasetrinu (Pub Quiz)
Barsvar í léttum dúr þar sem spurningar fjalla að sjálfsögðu um Súðavíkurhrepp og Vestfirði alla. Alvöru vestfirsk verðlaun í boði og tilboð á öli.

Föstudagur 31. júlí

Kl. 9:30 Hestur í Hestfirði (fjórir skór)
Hestfjall sker sig úr fjöllum við Ísafjarðardjúp þar sem það stendur stakt og hömrum girt á milli Hestfjarðar og Seyðisfjarðar. Gengið verður á þetta bratta og formfagra fjall í fylgd Barða, sem ólst upp á samnefndum bæ undir fjallinu. Fararstjórar Anna Lind og Barði. Farið verður af stað kl. 9:30 frá Kaupfélaginu í Súðavík og keyrt inn að eyðibýlinu Hesti. Gangan sjálf hefst kl. 10. Gangan er ekki fyrir lofthrædda. Vegalengd 6-7 km, uppsöfnuð hækkun 550 m, göngutími 5-6 tímar.
Kl. 19 Gönguhátíðin sett og haldin verður matarveisla.
Kl. 21 Brenna
Kl. 20:50 verður stutt skrúðganga úr matarveislunni yfir að brennunni þar sem kveikt verður í bálkestinum kl. 21. Við brennuna verður hópsöngur.

Laugardagur 1. ágúst

Kl. 8-10 Hafragrautur með lifrarpylsu og lýsisskammti á Kaupfélaginu
Hafragrautur með lifrarpylsu og lýsisskammti er sígildur og góður morgunverður og kemur göngufólki af stað og í gott skap. Skammturinn er á kr. 700 en frítt er fyrir þá sem eru með gönguarmband.
Kl. 9 Súðavíkurfjall og tónleikar með Mugison (þrír skór)
Frá Arnarnesi og upp og komið niður Traðagilshvílft að Súðavík eða öfugt. Fólk kemur saman við Kaupfélagið í Súðavík og lagt er af stað kl. 9. Ofan af Súðavíkurfjalli er mikið og gott útsýni yfir Djúpið. Þegar komið er niður í hvilftina hefjast þar tónleikar með Mugison. Fararstjórar Anna Lind og Barði. Vegalengd ca 10 km og uppsöfnuð hækkun ca 700 m. Göngutími með tónleikum er ca 6-7 tímar. Eftir göngu þarf að skipuleggja akstur með bílstjórana til að sækja bílana í Arnarnes.
Kl. 9 Bardagi (þrír skór)
Bardagi er fallegur tindur á milli Álftafjarðar og Seyðisfjarðar og fær nafn sitt af bardaga tveggja dverga sem vörpuðu björgum. Brattar hlíðar, en svo eru verðlaunin frábært útsýni yfir fjöllin og Djúpið. Komið er saman við Kaupfélagið í Súðavík og lagt af stað kl. 9. Fararstjóri Orri Sverrisson. Vegalengd ca 3-4 km og hækkun ca 600 m. Göngutími 3-4 tímar.
Kl. 12 Gengið á tónleika með Mugison
Komið er saman við Kaupfélagið kl. 12 og keyrt upp í grjótnámu og bílum lagt. Þaðan er gengið upp í Traðargilshvilftina og Mugison verður með tónleika og án efa mun Mugilady leggja sín lóð á vogarskálarnar. Tónleikastaðurinn er í ríflega 500 m hæð og það verður án efa ógleymanlegt að hlýða á frábæra tónlist og horfa yfir Djúpið og Álftafjörðinn. Vegalengd 3 km, uppsöfnuð hækkun ca 450 m.
Kl. 17 Síðdegisganga um þorpið (einn skór)
Fjallað um þætti úr sögu Súðavíkur m.a. fyrstu hvalveiðistöðina á Íslandi á Langeyri, svæðið þar sem snjóflóðið féll 16. janúar 1995, Raggagarð og fleira. Hist við Kaupfélagið í Súðavík kl.17:00. Vegalengd ca 5 km. Göngutími 1-2 tímar. Leiðsögn: heimamaður.
Kl. 19:00 Sameiginlegt grill í Raggagarði
Grillin verða orðin heit kl. 19:00 og hægt að koma með eigið kjöt á grillið eða kaupa grillaðar pylsur á vægu verði. Pappadiskar og hnífapör verða á staðnum. Spiluð verður létt tónlist.
Kl. 21 Útidansleikur í Raggagarði
Fjörugt ball í framhaldi af grillinu þar sem dansað verður inn í kvöldið. Gestir koma með drykkina með sér.

Sunnudagur 2. ágúst

Kl. 8-10 Hafragrautur með lifrarpylsu og lýsisskammti á Kaupfélaginu
Hafragrautur með lifrarpylsu og lýsisskammti er sígildur og góður morgunverður og kemur göngufólki af stað og í gott skap. Skammturinn er á kr. 700 en frítt er fyrir þá sem eru með gönguarmband.
Kl. 9 Galtarviti um Bakkaskarð (þrír skór)
Komið saman við Kaupfélagið í Súðavík, sameinast í bíla og keyrt í Skálavík. Komið er við á Bónusplaninu á Ísafirði kl. 9:30. Lagt er af stað úr Skálavík um tíuleytið og gengið um Bakkaskarð að Galtarvita. Vitinn stendur á fögrum stað í Keflavík á milli fjallanna Öskubaks og Galtar. Vegalengd 12 km og 880 m uppsöfnuð hækkun. Göngutími ca 6-8 tímar. Leiðsögn Barði og Anna Lind
Kl. 11 Valagil (einn skór)
Keyrt frá Kaupfélagsplaninu inn í botn Álftafjarðar og lagt á bílastæði á Seljalandi en þar búið fram til 1972-4. Tvíþætt ganga – annars vegar styttri ganga að Valagili og hins vegar áfram og upp með gljúfrunum. Það hefur lengi verið vinsælt að ganga í hið fallega Valagil og sem flestir hvattir til að koma með og hlusta á söguna af Bóthildi. Leiðsögn Einar Skúlason. Styttri gangan er ca 4 km og lengri gangan um 10 km.
Kl. 12 Ögurganga (tveir skór)
Gengið frá Ögri og upp á útsýnisstað þar sem má sjá glæsilegt útsýni yfir Skötufjörð, Vigur, Ísafjarðardjúp og Æðey. Þarna eru einnig mestu hvalaslóðir Djúpsins og algengt að sjá hnúfubaka í ætisleit. Verð fyrir manninn er kr. 1500 og er innifalið að fá kaffi/te/kakó og kökusneið í lok göngu á kaffihúsinu í Ögri. Hist er við samkomuhúsið í Ögri, hægt að leggja bílum þar og lagt af stað kl. 12. Gangan tekur um tvo tíma með stoppum. Leiðsögn: Guðfinna Hreiðarsdóttir. Vegalengd: ca 6 km og hækkun 250 m. Athugið að það tekur rúman klukkutíma að keyra frá Súðavík að Ögri.
Kl. 16 Naustahvilft (2 skór)
Gangan upp í Naustahvilft er við flestra hæfi og útsýnið yfir Skutulsfjörðinn og Ísafjarðarbæ svíkur engan. Sagðar verða nokkrar sögur og þátttakendur kvitta í gestabókina í hvilftinni. Vegalengd er ca 2 km og hækkun 220 m. Göngutími er ca 2 tímar með stoppum. Leiðsögn: Ísfirðingur.
Kl. 20 Sögustund á sunnudagskvöldi í anda baðstofuloftsins
Tilkynnt verður nánar á sjálfri gönguhátíðinni um staðsetningu sögustundarinnar. Sagðar verða fjölbreyttar sögur af fólki í Djúpinu.

Mánudagur 3. ágúst

Kl. 8-10 Hafragrautur með lifrarpylsu og lýsisskammti á Kaupfélaginu
Hafragrautur með lifrarpylsu og lýsisskammti er sígildur og góður morgunverður og kemur göngufólki af stað og í gott skap. Skammturinn er á kr. 700 en frítt er fyrir þá sem eru með gönguarmband.
Kl. 9 Morgunganga á Kofra (þrír skór)
Komið saman við Kaupfélagið og í sameinast í bíla. Keyrt af stað kl. 9. Gengið verður á Kofra í leiðsögn Önnu Lindar og Barða, en líklega hefur enginn (lífs eða liðinn) gengið oftar á Kofrann en Barði. Gangan getur verið áskorun fyrir lofthrædda. Sögustund verður á toppnum um kraftinn í Kofra. Hámark 30 manns. Vegalengd: 3 km. Hækkun 600 m, Göngutími: 5 tímar. Leiðsögn: Anna Lind Ragnarsdóttir og Barði Ingibjartsson.

Um göngurnar

Almennt séð eru fjöll og heiðar á þessum slóðum grýtt. Þannig er um flestar göngurnar nema láglendisgöngur. Gott er að vera með göngustaf eða stafi og gæta þess þá að hafa lykkjuna ekki utan um úlnliði. Þá er gott að vera í gönguskóm með góðu gripi á sóla. Mikilvægt er að velja göngur við hæfi og nota vegalengd og hækkun á leið sem mælikvarða.
Almennir fyrirvarar gilda um göngur út frá veðri og aðstæðum. Ef fella þarf niður göngu eða göngur vegna slíks þá er stefnt á að vera með aðrar göngur í staðinn.
Þátttakendur mæta í göngur á eigin ábyrgð og er bent á að hafa ferða- og slysatryggingar í lagi.

Verðskrá:

Forsöluverð á gönguarmbandi til 15. júlí kr. 7.000, smellið hér til að kaupa armband (verður afhent í Súðavík): https://paymentweb.valitor.is/Tengill/in3ahq
Eftir 15. júlí mun armbandið kosta kr. 8.000.
Innifalið í gönguarmbandi eru allar göngurnar, tjaldsvæði í Súðavík alla helgina fyrir handhafa og hafragrautur á morgnana með lýsi og lifrarpylsu og kaffi.
Athugið að ganga í Ögri er ekki innifalin í armbandi.
Verð í styttri göngur er kr. 1500.
Verð í lengri göngur er kr. 3000.
Verð á gönguarmbandi er kr. 8.000
Verð á gönguarmbandi fyrir 16-18 ára og elli- og örorkulífeyrisþega kr. 4000
Verð á gönguarmbandi fyrir 6-15 ára kr. 1500
Gönguarmband kostar ekkert fyrir leikskólaaldur.
Miðstöð gönguhátíðarinnar er í Jóni Indíafara í Grundarstræti og þar verður hægt að fá upplýsingar um hvaðeina sem tengist gönguhátíðinni, kaupa armband (og fá afhent fyrirframgreitt armband) eða aðgang að einstökum göngum, fá upplýsingar um dagskrá, ráðgjöf um búnað, borða hafragraut á morgnana og drekka kaffi og te allan daginn, þar verður líka létt stemning á föstudags- og sunnudagskvöldinu.
Aðrar gönguleiðir
Hægt er að prófa ýmsar aðrar gönguleiðir á svæðinu með Wapp-Walking app. Gönguleiðir eru í Heydal, Vatnsfirði, á Hvítanesi við Skötufjörð, í Hestfirði, í Álftafirði og þrjár leiðir eru í Skutulsfirði og nokkrar leiðir við Korpudal í Önundarfirði og í Bolungarvík og í Dýrafirði.
Aðstandendur hátíðarinnar:
Í forsvari fyrir gönguhátíðina er Einar Skúlason – GSM 663 2113.
Gönguklúbburinn Vesen og vergangur er á Facebook og með rúmlega 12.000 meðlimi. Farið er í ca 3-5 gönguferðir á viku. Forsvarsmaður er Einar Skúlason: https://www.facebook.com/groups/vesenogvergangur/
Göngufélag Súðavíkur stendur fyrir reglubundnum gönguferðum í Álftafirði og víðar. Formaður er Barði Ingibjartsson.
Súðavíkurhreppur er sveitarfélag við Ísafjarðardjúp og nær frá Ísafjarðarbotni að Súðavíkurhlíð við Álftafjörð.
Einnig er samstarf við Ferðafélag Ísfirðinga sem stendur fyrir fjölbreyttri göngudagskrá allt árið.

DEILA