Göngubók – 282 stuttar gönguleiðir

Ungmennafélags Íslands vill kynna fólk fyrir umhverfinu svo það fari betur með náttúruna og læri að umgangast hana.

Með styrk frá Heilbrigðisráðuneytinu var ákveðið að fara af stað með átak til þess að fá landsmenn í gönguferðir um landið með aðgengilegum og stikuðum gönguleiðum.

Fyrsta göngubókin kom út sumarið 2002 og innihélt hún 144 stuttar gönguleiðir víða um land.

Nýjasta eintak Göngubókar UMFÍ inniheldur lýsingar á 282 stuttum gönguleiðum fyrir alla fjölskylduna ásamt 10 gönguleiðum á fjöll. Það er liður í gönguverkefni UMFÍ sem heitir Fjölskyldan á fjallið og hefur verið í gangi jafn lengi og Göngubókin.

Í Göngubókinni er að finna lýsingu á 37 gönguleiðum á Vestfjörðum.

Göngubókinni er ætlað að hvetja fólk til útiveru og hreyfingar og vekja athygli á gönguleiðum ásamt því að hvetja til samveru fjölskyldunnar.

Göngubókina má nálgast á vefsíðu UMFÍ
http://www.umfi.is/media/4477/go-ngubo-k-umfi-2020.pdf

DEILA